Guðrún Sigurbjörg Bergþórsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Sigurbjörg Bergþórsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 28. júní 1965.
Foreldrar hennar Bergþór Guðjónsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 28. ágúst 1925, d. 18. nóvember 2007, og kona hans Gynda María Davidsen frá Færeyjum, húsfreyja, f. 26. ágúst 1923, d. 28. janúar 2013.

Börn Gyndu ogh Bergþórs:
1. Sólrún Bergþórsdóttir húsfreyja, f. 15. desember 1959. Maður hennar Robert Hugo Blanco.
2. Guðrún Sigurbjörg Bergþórsdóttir húsfreyja, f. 28. júní 1965. Maður hennar Birgir Rögnvaldsson.

Þau Birgir giftu sig, eignuðust tvö börn. Birgir lést 2015. Þau bjuggu í Mosfellsbæ.

I. Fyrrum maður Guðrúnar Sigurbjargar var Birgir Rögnvaldsson sjómaður, síðan þjónustufulltrúi, f. 24. febrúar 1959, d. 15. desember 2015.
Börn þeirra:
1. Anna María Birgisdóttir, f. 7. febrúar 1999.
2. Bergþór Ingi Birgisson, f. 31. júlí 2000.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.