Guðmundur Rafn Gunnarsson
Guðmundur Rafn Gunnarsson, sjómaður fæddist28. janúar 1952 í Háagarði.
Foreldrar hans Þórdís Guðmundsdóttir, f. 27. ágúst 1931, d. 27. júní 2023, og barnsfaðir hennar Gunnar Hörður Garðarsson, sjómaður frá Sauðárkróki, f. 24. mars 1931, d. 4. september 2018.
Börn Þórdísar og Gunnars:
1. Guðmundur Rafn Gunnarsson, f. 28. janúar 1952 í Háagarði. Kona hans Guðrún Björnsdóttir
2. Jóel Eyjólfsson Gunnarsson, f. 7. janúar 1954 í Háagarði. Kona hans Inga Steinunn Ágústsdóttir Hreggviðssonar.
Börn Þórdísar og Magnúsar:
3. Guðrún Bára Magnúsdóttir, f. 13. apríl 1955 í Háagarði. Maður hennar var Steindór Árnason, látinn.
4. Pétur Magnússon, f. 10. desember 1956 í Norðurbænum á Kirkjubæ. Kona hans Guðfinna Sigríður Antonsdóttir.
5. Þorbjörn Helgi Magnússon, f. 11. janúar 1958. Kona hans Erna Adolfsdóttir.
6. Einar Magnússon, f. 14. desember 1962. Kona hans Snæbjört Ýr Einarsdóttir
7. Laufey Magnúsdóttir, f. 19. mars 1964. Fyrrum maður hennar Snorri Gíslason. Sambúðarmaður hennar Bjarni Jónasson.
Þau Guðrún giftu sig, eignuðust ekki börn saman en Guðrún átti eitt barn áður. Þau búa við Herjólfsgötu 2.
I. Kona Guðmundar er Guðrún Björnsdóttir, húsfreyja, verkakona, f. 7. ágúst 1951.
Barn Guðrúnar og fósturbarn Guðmundar:
1. Þór Traustason, f. 30. mars 1975.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðrún.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.