Guðmundur Einarsson (Þingholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðmundur Einarsson.

Guðmundur Einarsson í Þingholti, sjómaður, skipstjóri fæddist 12. mars 1885 Hárima í Þykkvabæ í Djúpárhreppi í Rang, og lést 1. ágúst 1971.
Foreldrar hans voru Einar Einarsson bóndi í Vestri-Tungu í V.-Landeyjum, f. 6. nóvember 1857, d. 5. maí 1936, og barnsmóðir hans Guðrún Runólfsdóttir í Snotru í Þykkvabæ í Holtum, bóndi þar, f. þar 4. nóvember 1857, d. 17. febrúar 1951.

Hálfbróðir Guðmundar, af sömu móður var
1. Gísli Magnússon í Skálholti við Urðaveg 43, útgerðarmaður, skipstjóri, f. 25. júní 1886, d. 2. maí 1962.

Guðmundur var með móður sinni í Snotru í æsku, var vinnumaður, sláttumaður, sjómaður á Hala þar 1910.
Þau Margrét giftu sig 1918 í Reykjavík, fluttu til Eyja sama ár. Þau eignuðust fjögur börn, þar af tvö í Eyjum, bjuggu í Þingholti og Engidal við Brekastíg 15c.
Margrét lést 1930 og Guðmundur 1971.

I. Kona Guðmundar, (5. september 1918), var Margrét Jónasína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 10. júlí 1893, d. 27. september 1930.
Börn þeirra voru:
1. Sigfríð Þorbjörg Guðmundsdóttir Breiðfjörð húsfreyja, f. 26. júní 1919 í Þingholti, d. 4. desember 1989. Fyrrum sambúðarmaður hennar Jón Jónasson. Maður hennar Kenneth Breiðfjörð verslunarmaður.
2. Fanný Ágústa Guðmundsdóttir Thorlacius húsfreyja á Nýlendugötu 20A í Reykjavík, f. 8. október 1921 í Engidal við Brekastíg 15c. Maður hennar Þorleifur Ólafsson Thorlacius skipasmíðameistari.
3. Pálfríður Guðmundsdóttir, f. 25. apríl 1925 í Reykjavík. Maður hennar Steinþór Ingvarsson pípulagningamaður.
4. Guðni Ragnar Guðmundsson starfsmaður Loftleiða, bjó í Ytri-Njarðvík, f. 17. júlí 1928 í Reykjavík.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III – Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.