Guðlaugur Ágústsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaugur Ágústsson, frá Brekkuborg í Breiðdal, sjómaður, vélstjóri, verkstjóri fæddist 2. apríl 1919 og lést 24. júlí 2004.
Foreldrar hans Ágúst Pálsson, f. 11. ágúst 1886, d. 5. apríl 1955, og Sigurlaug Stefanía Einarsdóttir, f. 25. september 1896, d. 24. desember 1970.

Þau Svanhild giftu sig 1945, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Brekastíg 25.

I. Kona Guðlaugs, (31. desember 1945), var Svanhild Jensen Ágústsson, frá Sandey í Færeyjum, húsfreyja, f. 22. júní 1926, d. 21. júlí 2001.
Börn þeirra:
1. Sigurlaug Ágústa Guðlaugsdóttir húsfreyja, f. 22. september 1945, d. 17. júní 2019. Maður hennar Aðalsteinn Aðalsteinsson.
2. Ingiborg Guðlaugsdóttir, f. 4. ágúst 1947.
3. Bjartmar Anton Guðlaugsson, f. 13. júní 1952. Kona hans María Helena Haraldsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.