Gróa Jóhannsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gróa Jóhannsdóttir frá Voðmúlastaðahjáleigu í A-Landeyjum, húsfreyja fæddist 23. febrúar 1873 og lést 5. júlí 1963.
Foreldrar hennar voru Jóhann Jónsson bóndi í Vorsabæ í A-Landeyjum, f. 24. október 1843 í Neðri-Dal u. V-Eyjafjöllum, d. 11. nóvember 1911 í Vorsabæ, og kona hans Sigríður Oddsdóttir húsfreyja, f. 1. júlí 1848 í Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu (Bólstað) í A-Landeyjum, d. 10. nóvember 1922 í Eyjum.

Börn Sigríðar og Jóhanns í Eyjum:
1. Gróa Jóhannsdóttir húsfreyja á Herjólfsgötu 5, f. 23. febrúar 1873, d. 5. júlí 1963.
2. Einar Jóhannsson verkamaður í Skála, f.24. júní 1875, d. 28. desember 1930.
3. Jónína Jóhannsdóttir húsfreyja í Garðsauka, f. 30. október 1886, d. 6. september 1976.
Fóstursonur þeirra:
4. Sigurður Einarsson sjómaður, f. 29. nóvember 1904, d. 6. febrúar 1943.

Gróa var með foreldrum sínum í Vorsabæ 1880 og 1890, var vinnukona í Holti u. Eyjafjöllum 1901, var með foreldrum sínum í Vorsabæ 1910, með Sigríði móður sinni þar 1920.
Hún fluttist í V-Skaft. 1923, var vinnukona á Hörgslandi 1923-1925, á Keldunúpi 1925-1926.
Þau Þorleifur giftu sig 1926, eignuðust ekki börn. Þau voru á Á á Síðu 1926-1929.
Þau fluttu til Eyja 1929 og bjuggu þar síðan, í Skógum við Bessastíg 8 1930, á Herjólfsgötu 5 1934 og síðan.
Þorleifur lést 1961 og Gróa 1963.

I. Maður Gróu, 19. nóvember 1926), var Þorleifur Jónsson verkamaður, f. 23. júlí 1890 í Búlandsseli í Skaftártungu, V-Skaft., d. 11. ágúst 1961.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Garður.is.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.