Elín Laufey Leifsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Elín Laufey Leifsdóttir, húsfreyja, skólaliði fæddist 12. apríl 1958.
Foreldrar hennar Leifur Ársælsson, útgerðarmaður, verslunarstjóri, f. 10. júlí 1931, d. 16. september 2017, og kona hans Guðný Bjarnadóttir, húsfreyja, f. 25. apríl 1931, d. 27. ágúst 2017.

Börn Guðnýjar og Leifs:
1. Guðrún Birna Leifsdóttir húsfreyja og starfsmaður í Hraunbúðum, f. 9. maí 1951. Maður hennar er Bjarni Guðjón Samúelsson húsasmiður, f. 8. apríl 1950.
2. Leifur Ársæll Leifsson húsasmiður, f. 8. febrúar 1955, d. 7. ágúst 2013. Kona hans var Jóna Björgvinsdóttir húsfreyja og skrifstofustjóri hjá Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, f. 7. nóvember 1957.
3. Elín Laufey Leifsdóttir húsfreyja og leiðbeinandi í Hraunbúðum, f. 12. apríl 1958. Maður hennar er Jóhannes Óskar Grettisson húsasmiður, f. 27. mars 1958.

Þau Jóhannes Óskar giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Gerðisbraut 6.

I. Maður Elínar Laufeyjar er Jóhannes Óskar Grettisson, húsasmiður, f. 27. mmars 1958.
Börn þeirra:
1. Grettir Jóhannesson, f. 19. apríl 1982.
2. Leifur Jóhannesson, f. 27. nóvember 1985.
3. Guðrún Ósk Jóhannesdóttir, f. 14. nóvember 1992.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.