Draugur (hlið)
Fara í flakk
Fara í leit
Draugur (hlið)
Draugur var nafn á hverfihliðum, sem notuð voru í Eyjum, einkum á tröðum í túnum milli bæja.
Þau voru þannig gerð, að traustur stólpi var rekinn í jörð í girðingunni í miðri tröð. Í endaflöt stólpans var rekinn traustur járnbolti, sem gekk upp í kross, sem snerist á honum. Þetta hlið var skepnuhelt.
Munað er eftir slíkum draugum sunnan Presthúsa, á vesturgirðingu þeirra, annað á austurgirðingu þeirra og vesturgirðingu Búastaða, síðan milli austurgirðingar Búastaða og Oddsstaðajarðarinnar og á milli túnsins í Túni og hlaðs á Kirkjubæ við Runkatjörn.
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1973.
- Pers.