Blik 1974/Vornæturkyrrð, ljóð
Fara í flakk
Fara í leit
- Vornæturkyrrð
- Fjalladalur ilmi andar,
- æðasláttur lífsins hljóðnar,
- fjöll og jöklar fögru skauta,
- fald sinn baða í vatni skyggndu,
- röðull blóðgum brennur loga,
- býst til hvíldar dagur liðinn.
- Fjalladalur ilmi andar,
- Fjallavatnsins báru-blikið
- bifast mjúkt sem móðurfaðmur,
- kynjadjúpur að sér allan
- alheim rúmar himindjúpan,
- gjálpar stilltu, ljúfu lagi
- af lífsfögnuði um bjartar nætur.
- Fjallavatnsins báru-blikið
- Sælt og kyrrlátt byggðin blundar,
- burstaþil á verði standa,
- féð sig bælir mjúkt í móa,
- mosa-þúfa, grænu í flosi,
- mýrisnípa ei heyrist hneggja,
- hvergi vella nokkur spói.
- Sælt og kyrrlátt byggðin blundar,
- Daginn, þegar röðull roðar,
- rísa af blundi annir dagsins,
- bæjarþila burstir gneipar
- búralegar úr sér teygja,
- reykir upp í leti-lygnu
- líða fyrir engum blænum.
- Daginn, þegar röðull roðar,
- Lækjarniður lífsóð kveður,
- lækinn kljúfa sporðar kvikir,
- ærnar lembdar lóna um grundir,
- lömbin sjúga, dyndli skvetta,
- hneggjar loft af hrossagauki,
- heyrist spóinn líka vella.
- Lækjarniður lífsóð kveður,
- Í friðsæld byrjar bjartur dagur,
- blítt hann fer á ný að skína,
- bóndi rís til lofts að líta
- um leið og sinnir þörfum brýnum.
- Þannig byrja bændur daginn,
- brauðs og neyta í andlits-sveita.
- Í friðsæld byrjar bjartur dagur,
- Friður lifi, - friðar-vaki,-
- fullnustunnar orkugjafi,
- allar götur út til stranda,
- innst til fjalla, vítt um byggðir,
- vaxi farsæld innst sem utast,
- andann veki himin-tungur.
- Þá mun dagsins þjóðin njóta,
- þjónustunni trúnað sverja.
- Friður lifi, - friðar-vaki,-