Axel Sveinsson (Eyjarhólum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Axel Sveinsson verkamaður, sjómaður á Eyjarhólum, (Hásteinsvegi 20) fæddist 6. júní 1912 í Garðshorni í Hofshreppi í Skagafirði og lést 9. júlí 1950.
Foreldrar hans voru Sveinn Sveinsson, bóndi, síðar sjómaður og verkamaður á Siglufirði, f. 12. ágúst 1878, d. 9. júlí 1950, og fyrri kona hans Gunnhildur Sigurðardóttir húsfreyja, f. 28. febrúar 1879, d. 30. júlí 1950.

Axel var með fjölskyldu sinni í Skarðdalskoti í Siglufirði í æsku.
Hann fluttist til Eyja 1945. Þau Lilja bjuggu á Kirkjuvegi 41, (Langa-Hvammi) við fæðingu Ármanns Guðlaugs 1946, á Eyjarhólum, (Hásteinsvegi 20) 1949.
Axel lést 1950 á Siglufirði.

I. Barnsmóðir Axels var Sigrún Stefánsdóttir, síðar húsfreyja á Siglufirði, f. 5. ágúst 1916 í Borgargerði í Skagafirði, d. 19. janúar 2006.
Barn þeirra:
1. Sigurlína Axelsdóttir húsfreyja á Ólafsfirði, f. 11. febrúar 1941, d. 22. nóvember 1975. Fyrrum maður hennar, (skildu), Hilmar Jóhannesson.

II. Sambýliskona Axels var Jónína Lilja Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 21. maí 1920, d. 14. febrúar 2004.
Barn þeirra:
2. Ármann Guðlaugur Axelsson þroskaþjálfi, garðyrkjufræðingur í Hveragerði og í Noregi, f. 5. janúar 1946 í Langa-Hvammi. Kona hans Heiður Adólfsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.