Anna Guðmundsdóttir (Túnsbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Anna Guðmundsdóttir frá Brekkum í Hvolhreppi, Rang., saumakona á Túnsbergi og í Breiðholti, síðar gæslukona í Reykjavík fæddist 17. desember 1885 á Brekkum og lést 7. febrúar 1969.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Þorkelsson bóndi á Brekkum, f. 3. júní 1828, d. 10. janúar 1904, og kona hans Ólöf Jónsdóttir húsfreyja, síðar á Túnsbergi, f. 28. ágúst 1843, d. 23. október 1924.

Systir hennar í Eyjum var
1. Steinunn Guðmundsdóttir á Túnsbergi, húsfreyja, f. 19. ágúst 1867 á Brekkum í Hvolhreppi, d. 12. maí 1944 í Eyjum.

Anna var með foreldrum sínum á Brekkum 1890, 15 ára hjú á Kirkjulandi í A.-Landeyjum 1901. Hún var vinnukona í Reykjavík 1910.
Anna var á Túnsbergi 1920, var leigjandi, saumakona í Breiðholti 1930, lausakona þar 1934.
Anna flutti til Reykjavíkur, var þar gæslukona.
Hún dvaldi að síðustu á Elliheimilinu Grund og lést 1969.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.