Wilhelm Thomsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2006 kl. 13:29 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2006 kl. 13:29 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Wilhelm Thomsen

Wilhelm var verslunarstjóri í Godthaab, fæddur 1844. Hann var hafnsögumaður um skeið og var settur sýslumaður 1871 í fjarveru Bjarna E. Magnússonar. Hann var kosinn í stjórn Skipaábyrgðarfélagsins við brottför sýslumanns. Thomsen var talinn starfsmaður góður en óreglusamur. Hann strauk til Ameríku 1873 vegna sjóðþurrðar við verslunina Godthaab.


Heimildir

  • Þorsteinn E. Víglundsson. Blik, ársrit gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Maí 1962.