„Suðurey“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
(Smávegis leiðr.)
m (mynd vinstrijöfnuð)
The content of the new revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
{{Eyjur}}
[[Mynd:Sudey45.jpg|thumb|300px|Suðurey]]


'''Suðurey''' liggur um kílómetra suðvestur af [[Stórhöfði|Stórhöfða]] og er fjórða stærsta úteyjan, um 0.2 km². Eyjan er gyrt háum hömrum að suðurhliðinni undanskilinni, þar sem grasi vaxin brekka nær niður að sjó. Við brekkuna er eini möguleiki á uppgöngu á eyjuna en vegna öldubrots úr suðri er hún stundum erfið. Um miðbik eyjarinnar liggur hryggur, um 161 m hár þar sem hann er hæstur. Mikið gróðurlendi þekur stóran hluta eyjunnar. Veiðikofi Suðureyinga var reistur 1951 norðan megin á eyjunni en miklar endurbætur hafa verið gerðar síðan þá. Fé er haft á beit í Suðurey og úteyjamenn veiða þar lunda.
[[Mynd:Suðurey-kort.PNG|thumb|left|Gamalt kort af Suðurey]]
Það er sagt bátfært í Suðurey þegar öldur brjóta ekki á sunnanverðri [[Hæna|Hænu]]; þar sem uppgangan er sunnan til á eynni og sést því ekki frá Heimaey.
==Úr örnefnaskrá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussonar]]==
III. '''Suðurey'''  liggur suðvestur af Heimaey, Stórhöfða – ca ¼ mílu. Er hún hömrum lukt á alla vegu, nema að sunnan. Þar er hún afhallandi í sjó niður, og grasivaxin svo langt sem sjór ekki nær. Fyrir ofan hallann er hryggur í austur og vestur, en norðan við hrygginn að brún er sléttlendi. Þykir eyjan vond til hagagöngu, ætluð 100 sauðum en nú á seinni árum aðeins 40-50. Fuglatekja hefir lítið verið stunduð þar seinni árin, áður höfðust ca 10.000 lundar og töluvert af svartfugl.
Á norðurjaðri eyjarinnar, fyrir miðju bergi er nefnt '''Vatn''', en efst í berginu brík, nefnd '''Hella'''. Af þessum stað renndu fuglamenn oft færi í sjó niður og fiskuðu alls konar fisk, oft mikið (t.d. þorsk og lúðu). Hæðin 30 faðmar að sjó niður og 12-14 faðmar til botns. Vestan við Vatn er nefnd '''Skora''', en þar vestur af '''Útnorðursnef'''; en austan við Vatn '''Landnorðursnef'''. Þar suður af, austan megin, er nefndur '''Hellir''', hellismyndun í berginu. En ofar '''Kórar'''  og þar suður af '''Eiríksbæli''', en '''Tobbafles''' þar upp af. Þar ofar '''Lend''', neðst í henni '''Gamlarétt''' (bekkur), þar sunnar '''Landsuðursbæli'''. '''Landsuðursnef''' er nefnt þar suður af; er þar lendingarstaður, en tæp uppganga.
Hér suður af er sker í sjó út, '''Suðureyjarsker'''. Suðvesturnef eyjarinnar er nefnt '''Grasanef'''  og austan við það er aðaluppgangan á eyna, en mjög brimsamt. Fyrir norðan nefið er '''Suðureyjarhellir''', en norður af honum '''Eggjanef'''  og þar norður af '''Mottukór'''  (motta notuð til þess að slá fyrir fuglinn). En upp af honum við brún er '''Hvannstóðarbæli'''  og þar upp af '''Hvannstóðsbekkur''', en þar norður af '''Hvannstóð'''. Norður af því neðarlega í berginu er '''Strákakór'''.
{{Heimildir|
* [[Gísli Lárusson]]. 1914 '''Örnefni á Vestmannaeyjum'''. [http://www.ornefni.is Örnefnastofnun Íslands]
}}
[[Flokkur:Örnefni]]
[[Flokkur:Eyjur]]

Útgáfa síðunnar 14. júní 2006 kl. 23:08