Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. mars 2013 kl. 22:59 eftir Gauti (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. mars 2013 kl. 22:59 eftir Gauti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja var stofnað á hlaupársdeginum 29. febrúar 2012, en stofnfundur var á jafndægrum þremur vikum seinna hinn 20. mars 2012. Áður hafði Karl Gauti Hjaltason sýslumaður haldið stjörnufræðinámskeið á vegum Visku. Námskeiðin voru afar vel sótt og fljótlega fór áhugi bæjarbúa að beinast meira að stjörnum. Eftir annan veturinn sem námskeiðið var haldið var ákveðið að stofna félag.

Á stofnfundinn mættu 27 en 34 skráðu sig sem stofnfélagar í félagið. Á stofnfundinum var stjórn félagsins kjörin ásamt formanni. Karl Gauti tók stöðu formanns.. Aðrir stofnmeðlimir voru Soffía Valdimarsdóttir, gjaldkeri, Margrét Lilja Magnúsardóttir, ritari, Bjartur Týr Ólafsson, tölvumál og Védís Guðmundsdóttir, meðstjórnandi.

Tilgangur félagsins er að vekja áhuga bæjarbúa á stjörnuskoðun ásamt því að koma af stað samstarfi við skóla bæjarins. Á vegum félagsins eru haldnir fyrirlestrar og hittast félagar við góð tækifæri til þess að skoða himingeiminn.

Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja er þriðja áhugamannafélagið um stjörnufræði og stjörnuskoðun á Íslandi en fyrir eru Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness (SSFS) og Stjörnu-Oddi á Akureyri.


Helstu viðburðir og fyrirlestrar á vegum SFV:

  • 12. apríl 2012 í Safnahúsinu - Kristján Heiðberg um sjónauka og myndatökur, 35 sóttu fundinn.
  • 2. júní 2012, Fiska- og Náttúrugripasafn Vestmannaeyja, Karl Gauti Hjaltason, Stjörnur og sjófarendur, 35 manns sóttu fyrirlesturinn.
  • 5. júní 2012 í Höfðavík, tilraun til að fylgjast með þvergöngu Venusar fyrir sólu, en ský hindruðu sýn, 30-40 manns sóttu atburðinn.
  • 31. jan. 2013 í Safnahúsinu - Sævar Helgi Bragason, form. SSFS, um Marsjeppann, 45 sóttu fundinn.