Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. febrúar 2013 kl. 13:23 eftir Gauti (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. febrúar 2013 kl. 13:23 eftir Gauti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja var stofnað á hlaupársdeginum 29. febrúar 2012, en stofnfundur var á jafndægrum þremur vikum seinna hinn 20. mars 2012. Áður hafði Karl Gauti Hjaltason sýslumaður haldið stjörnufræðinámskeið á vegum Visku. Námskeiðin voru afar vel sótt og fljótlega fór áhugi bæjarbúa að beinast meira að stjörnum. Eftir annan veturinn sem námskeiðið var haldið var ákveðið að stofna félag.

Á stofnfundinn mættu 27 en 34 skráðu sig sem stofnfélagar í félagið. Á stofnfundinum var stjórn félagsins kjörin ásamt formanni. Karl Gauti tók stöðu formanns.. Aðrir stofnmeðlimir voru Soffía Valdimarsdóttir, gjaldkeri, Margrét Lilja Magnúsardóttir, ritari, Bjartur Týr Ólafsson, tölvumál og Védís Guðmundsdóttir, meðstjórnandi.

Tilgangur félagsins er að vekja áhuga bæjarbúa á stjörnuskoðun ásamt því að koma af stað samstarfi við skóla bæjarins. Á vegum félagsins eru haldnir fyrirlestrar og hittast félagar við góð tækifæri til þess að skoða himingeiminn.

Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja er þriðja áhugamannafélag um stjörnufræði og skoðun á Íslandi en fyrir eru Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnu-Oddi á Akureyri.