„Stakkagerði“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
 
(5 millibreytingar ekki sýndar frá 4 notendum)
Lína 1: Lína 1:
'''Stakkagerði''' var bær á [[Stakkagerðistún]]i, líklega á þeim stað þar sem [[Alþýðuhúsið]] er í dag, og dregur túnið nafn sitt af bænum.
[[Mynd:Stakkagerði 2.jpg|thumb|300px|Stakkagerði]]
'''Stakkagerði''' var bær á [[Stakkagerðistún]]i, líklega nærri þeim stað þar sem [[Alþýðuhúsið]] er í dag, og dregur túnið nafn sitt af bænum.


Sögufrægasti einstaklingurinn sem bjó þar mun hafa verið [[Guðríður Símónardóttir]], eða ''Tyrkja-Gudda'' eins og hún var yfirleitt kölluð eftir heimkomu hennar frá Algeirsborg, en hún var numin brott frá Vestmannaeyjum í [[tyrkjaránið|tyrkjaráninu]] árið 1627. Raunar skilaði hún sér aldrei aftur til Vestmannaeyja, heldur giftist hún Hallgrími Péturssyni, presti, og bjó með honum í Reykjavík til æviloka. Eftir brottnám hennar bjó maður hennar, Eyjólfur Sölmundarson, þar, en hann dó einhverjum árum síðar er hann drukknaði.
Sögufrægasti einstaklingurinn sem bjó þar mun hafa verið [[Guðríður Símonardóttir]], eða ''Tyrkja-Gudda'' eins og hún var yfirleitt kölluð eftir heimkomuna frá Algeirsborg, en hún var numin brott frá Vestmannaeyjum í [[tyrkjaránið|Tyrkjaráninu]] árið 1627. Raunar skilaði hún sér aldrei aftur til Vestmannaeyja, heldur giftist hún séra Hallgrími Péturssyni, sálmaskáldi, og bjó með honum fyrst í Hvalsnesþingum á Reykjanesi og síðar í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd til æviloka hans. Eftir brottnám Guðríðar bjó maður hennar, [[Eyjólfur Sölmundarson]], í Stakkagerði en hann drukknaði skömmu áður en Guðríður kom aftur til Íslands.
 
Táknrænn minnisvarði var reistur í minningu Guðríðar fyrir nokkrum árum og stendur austast á Stakkagerðistúni.


[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Örnefni]]
[[Flokkur:Örnefni]]
[[Flokkur:Stakkagerðistún]]

Núverandi breyting frá og með 28. október 2013 kl. 16:44

Stakkagerði

Stakkagerði var bær á Stakkagerðistúni, líklega nærri þeim stað þar sem Alþýðuhúsið er í dag, og dregur túnið nafn sitt af bænum.

Sögufrægasti einstaklingurinn sem bjó þar mun hafa verið Guðríður Símonardóttir, eða Tyrkja-Gudda eins og hún var yfirleitt kölluð eftir heimkomuna frá Algeirsborg, en hún var numin brott frá Vestmannaeyjum í Tyrkjaráninu árið 1627. Raunar skilaði hún sér aldrei aftur til Vestmannaeyja, heldur giftist hún séra Hallgrími Péturssyni, sálmaskáldi, og bjó með honum fyrst í Hvalsnesþingum á Reykjanesi og síðar í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd til æviloka hans. Eftir brottnám Guðríðar bjó maður hennar, Eyjólfur Sölmundarson, í Stakkagerði en hann drukknaði skömmu áður en Guðríður kom aftur til Íslands.

Táknrænn minnisvarði var reistur í minningu Guðríðar fyrir nokkrum árum og stendur austast á Stakkagerðistúni.