„Sprang“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 1: Lína 1:
Sem að líkum lætur fóru menn ekki óþjálfaðir í fjallaferðir, sér í lagi ekki þeir sem síga áttu í bjarg. Því fundu menn sér góða staði heima fyrir þar sem hægt var að æfa sig í fjallaklifri og sigi. Einn þekktastur slíkra staða í Vestmannaeyjum heitir [[Undir Skiphellum]].
[[Mynd:Sprang.jpg|thumb|300px|Sprangað]]
Sem að líkum lætur fóru menn ekki óþjálfaðir í fjallaferðir, sér í lagi ekki þeir sem síga áttu í bjarg. Því fundu menn sér góða staði heima fyrir þar sem hægt var að æfa sig í fjallaklifri og sigi. Einn þekktastur slíkra staða í Vestmannaeyjum er undir [[Skiphellar|Skiphellum]].

Þarna voru allar aðstæður hinar ákjósanlegustu til að þjálfa verðandi fjallagarpa í öllum þeim kúnstum sem nota þurfti í fjallaferðum, svo sem [[lærvað]], [[tábragð | tábragði]], [[riði]], klifri og sprangi. Enn í dag þykir sá ekki maður með mönnum sem ekki getur sprangað skammlaust ofan af [[Almenningur|Almenningi]], sem er breið klettasylla u.þ.b. þrjá metra frá jörðu.
Þarna voru allar aðstæður hinar ákjósanlegustu til að þjálfa verðandi fjallagarpa í öllum þeim kúnstum sem nota þurfti í fjallaferðum, svo sem lærvað, tábragði, riði, klifri og sprangi. Enn í dag þykir sá ekki maður með mönnum sem ekki getur sprangað skammlaust ofan af Almenningi, sem er breið klettasylla u.þ.b. þrjá metra frá jörðu.

Þegar menn verða leiknir í íþróttinni taka við efri syllur með ýmsum nöfnum, svo sem [[Stígvél]], [[Gras]] og [[Efsta tó]]. Þá leika þeir bestu í íþróttinni einnig ýmsar kúnstir í loftinu, hnita hringi og steypa sér kollhnísa með miklum tilþrifum.
Þegar menn verða leiknir í íþróttinni taka við efri syllur með ýmsum nöfnum, svo sem Stígvél, Gras og Efsta tó. Þá leika þeir bestu í íþróttinni einnig ýmsar kúnstir í loftinu, hnita hringi og steypa sér kollhnísa með miklum tilþrifum.

Það er nokkuð fastur liður þegar tekið er á móti ferðamönnum í dag að farið er með þá inn í Spröngu og þeim gefinn kostur á að spreyta sig á einni flugferð, að vísu þó ofan af lægstu syllu.
Það er nokkuð fastur liður þegar tekið er á móti ferðamönnum í dag að farið er með þá inn í Spröngu og þeim gefinn kostur á að spreyta sig á einni flugferð, að vísu þó ofan af lægstu syllu.
[[Flokkur:Íþróttir]]

Núverandi breyting frá og með 17. júlí 2006 kl. 13:32

Sprangað

Sem að líkum lætur fóru menn ekki óþjálfaðir í fjallaferðir, sér í lagi ekki þeir sem síga áttu í bjarg. Því fundu menn sér góða staði heima fyrir þar sem hægt var að æfa sig í fjallaklifri og sigi. Einn þekktastur slíkra staða í Vestmannaeyjum er undir Skiphellum.