Snið:Gosannáll

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2005 kl. 14:27 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2005 kl. 14:27 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

23. janúar: Eftir jarðskjálftakippi hefst eldgos í Heimaey kl. 1:40 um nóttina. Allir íbúar fluttir á brott utan 250-300 manns.

24. janúar: Eldur í Kirkjubæ. Logandi hnullungar kveikja í húsum. Mikið gos og sprengingar. Nýtt fjall verður til. Gosmökkur í 8-9 km hæð.

25. janúar: Ýmis konar starfsemi fyrir Eyjafólk í Hafnarbúðum á Höfuðborgarsvæðinu. Erfitt að fá leyfi til Eyjaferða, aðeins vísindamenn og ljósmyndarar fá landgöngu.

26. janúar: 17 hús brenna. Vélbátar í Eyjum í stöðugum búslóðaflutningum milli Eyja og Þorlákshafnar. Gaus í Stakkabót og gossprungan þá 3 km löng.

27. janúar: 20 hús brunnin. 70 hús undir ösku og vikri. Hiti í höfninni um 15 gráður.

30. janúar: Búið að tæma nær öll hús austan Skólavegar. 150 hús brunnin og sokkin. Vont veður þegar vinnuflokkar moka vikur af húsþökum, negla fyrir glugga og bjarga eignunum.

31. janúar: Öll stjórnsýsla flutt til Reykjavíkur. Búið að negla fyrir glugga 900 húsa.

1. febrúar: Talið að þurfi allt að þúsund manns til að moka af húsþökum í Eyjum. 500 manna vinnuflokkur kemur til starfa. Eyjabátarnir koma með afla í aðrar hafnir á landinu.