Skansinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júní 2005 kl. 12:11 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júní 2005 kl. 12:11 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Skansinn hefur í aldaraðir verið fjölsóttur og vinsæll meðal Vestmannaeyinga, hvort sem er á sumri eða vetri. Útsýnið og fegurðin hafa löngum verið einstæð, en á veturna var oft hrikalegt að horfa af Skansinum út á vetrarsjóinn. Fólk fór oft út á Skansinn þegar bátar voru talstöðvarlausir og aðstandendur biðu milli vonar og ótta eftir að sjá bátskel föður eða eiginmanns birtast fyrir Klettsnefið og lensa heilu og höldnu inn Víkina.

Sjóveitutankurinn var byggður árið 1931 til að sjá fiskvinnslufyrirtækjum fyrir hreinu vatni til vinnslu.