Skaftfellingur VE-33

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júlí 2005 kl. 12:01 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júlí 2005 kl. 12:01 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Skaftfellingur VE-33
Skipstjóri: Sjá skipstjóratal
Útgerð: Skaftfellingur
Skipaútgerð Ríkisins
Þyngd: 60 brúttótonn
Lengd: 10m
Breidd: 3m
Ristidýpt: m
Vélar: Alfa, 48 Hö
Siglingahraði: sjómílur
Tegund: Fraktskip
Bygging: 1918, Troense, Danmörku
Tekinn af skipaskrá 1974

Skaftfellingur VE-33 var vöruflutningsskip sem lengst af var gert út frá Vestmannaeyjum. Það var án efa eitt frægara sjóskip Vestmannaeyja fyrr eða síðar. Það var smíðað árið 1918 fyrir hlutafélag sem stofnað var um strandsiglingar til Víkur og Vestur-Skaftafellssýslu.

Það var smíðað í Troense í Danmörku undir stjórn færeysk-ættaðs skipasmiðs að nafni Jakobsen. Hann þótti vanda verkið gríðarlega mikið, enda tafðist smíði skipsins um marga mánuði vegna þess. Það var ekki fyrr en í mars 1918 sem skipið var tilbúið til brottfarar, en áhöfn skipsins — Jón Högnason, skipstjóri, Finnbogi Finnbogason, stýrimaður, Ormur Ormsson, fyrsti vélstjóri og Elías Högnason, annar vélstjóri — höfðu farið út til Danmerkur með varðskipinu Islands Falk í maí 1917. Við komu þeirra kom í ljós að eingöngu var búið að leggja hluta bandanna, og þeir urðu að bíða í tíu mánuði eftir sjósetningu skipsins.

Skipið fékk nafnið Skaftfellingur og var fyrst um sinn skráð í Reykjavík. Það hlaut ekki sérstakt skráningarnúmer fyrr en árið 1948, þegar að Helgi Benediktsson tók við sem skipstjóri. Skipið var gætt 48 hestafla Alfa-vél og bar 60 smálestir. Það var hlaðið upp í Kaupmannahöfn ýmsum varningi. Skipið varð að bíða í Kaupmannahöfn fram til 1. apríl, vegna þess að heimstyrjöldin fyrri, sem þá stóð sem hæst, gerði það illmögulegt að útvega olíu á skipið. Enn fremur var ómögulegt að vátryggja skipið fyrr en 1. apríl.

Um miðjan apríl var siglt heim til Íslands, með viðkomu í Björgvin í Noregi vegna bilunar á stýri. Þar þurftu skipverjar að sigla inn hættulegan fjörð sem alsettur var skerjum og tundurduflum.

Skaftfellingur var alls 17 daga á leið frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur, en hann gekk bæði fyrir vél og segli á leiðinni. Skaftfellingur var ekki smíðaður sem seglskip, en hann gekk vel undir seglum og náði, að sögn fyrsta skipstjórans, allt að 10 sjómílna hraða undir segli.

Skaftfellingar nutu góðs af þeim breytingum sem að urðu við tilkomu skipsins. Lifnaðarhættir breyttust mjög og menn fóru að tala um Skaftfelling sem bátinn í daglegu tali.

Skaftfellingsfélagið

Tilgangur fjelagsins er að bæta samgöngur á sjó við Vestur-Skaftafellssýslu og Öræfi í Austur-Skaftafellssýslu, með því að reka siglingar milli hafna á Suðurlandi.

Skaftfellingsfélagið var stofnað um smíði og rekstur vélbátar til vöruflutninga eftir suðurströnd Íslands, og eftir stofnfund sem boðaður var af Sigurjóni Markússyni þann 7. febrúar 1917 þar sem að þrettán fulltrúar mættu, kjörnir úr öllum hreppum sýslunnar og austan úr Öræfum, var stofnfé safnað, 30.225 kr, sem þótti töluverð upphæð á þeim tíma. Fimm manna stjórn var kjörin undir formennsku Lárusar á Klaustri, og var ákveðið í félagslögum að einn stjórnarmanna skyldi flytjast til Reykjavíkur og sinna þaðan bókhaldi, ritstörfum og útgerðarstjórn fyrirtækisins. Hannes Thorarensen, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, var kjörinn í það embætti. Stjórnin hafði heimild til þess að tvöfalda hlutafé félagsins og veðsetja skipið fyrir því. Skaftfellingur kostaði um 70-80 þúsund krónur í smíði og heimflutningi.

Forstjóri Eimskipafélagsins aðstoðaði Skaftfellingsfélagið með að festa kaup á bát, sem var í smíði í Troense í Danmörku, en það var systurskip Svans, SH 183, sem var kallaður Breiðafjarðar-Svanurinn. Hlutafélagið auglýsti í upphafi 1917 eftir áhöfn og fóru þeir út lok Maí.

Félagið var lagt niður sumarið 1941 eftir að Alþingi hafði lagt af ríkisstyrk sínum við rekstur félagsins. Þá keypti Helgi Benediktsson skipið og var það flutt til Vestmannaeyja. Hluthafar fengu greidda inneign sína hjá félaginu, en það hljóðaði upp á um helming upphaflegs hlutafés.

Siglingar

Mynd:Siglingaleid skaftfellings.PNG Skaftfellingur stóð fyrir áætlunarsiglingum austur með suðurströnd landsins. Hann flutti vörur og farþega frá Reykjavík til Vestmannaeyja, þaðan til Víkur og þaðan að Skaftárósi og að Hvalsíki. Tvisvar til þrisvar á ári fór hann alla leið austur á Öræfi. Oft var sjólag við sandana það slæmt að Skaftfellingur varð að bíða í Vestmannaeyjum í marga daga eftir að fært yrði til Víkur og austar. Viðmiðun var viðhöfð að ef að öldu braut á sunnanverðri Bjarnarey, þá braut í sandinum við Vík, og þá var ófært — en jafnvel þótt farið var af stað um leið og fært varð, þá tók siglingin til Víkur upp í fjóra tíma, og gat veður versnað mjög á þeim tíma.

Skaftfellingur flutti oft að 60-70 farþega með skipinu, en eingöngu var aðstaða um borð fyrir tíu manns (áhöfnina) - sex kojur í lúkum skipsins og fjórar aftur í. Gert var ráð fyrir því í upphafi að byggja skýli fyrir tíu farþega, en það var aldrei gert. Á sumrin flutti hann fólk og vörur frá áramótum fram í miðjan Október, þegar að sláturtíð lauk. Þá var bátnum að jafnaði lagt ef að ekki var hægt að leigja hann út til flutninga á vegum annarra. Þannig gekk Skaftfellingur fram og til baka í um 20 ár, en þá var lagður bílfær vegur austur með söndunum að Síðu, og þá varð þörfin fyrir sjóflutninga minni. Þá var Skaftfellingur leigður til langs tíma í aðrar flutningar.

Upp úr 1939 dró verulega úr verkefnum skipsins á vegum Kaupfélags Skaftfellinga, en verslunin hafði flutt frá Skaftárósum að Kirkjubæjarklaustri árið 1937, og vegir lágu þangað. Skaftfellingur fór sína síðustu ferðir til Víkur árið 1938 og í þrjár ferðir á Öræfi 1939.

Áhöfnin hljóðaði fyrst af upp á fjóra menn — skipstjóra, stýrimann og tvo vélstjóra — en síðar var bætt við þremur hásetum. Flestir skipsmenn voru búsettir í Reykjavík fram til um 1937, skipstjóraskipti voru tíð á bátnum.

Skráningin VE-33

Þar til um 14. mars 1937 var Skaftfellingur skráður með heimahöfn í Reykjavík. Þá fluttist skráningin til Vestmannaeyja, og fékk skipið þá kallmerkið TFRI (TF er radíókallmerkjaforskeyti fyrir Ísland). Skipið var keypt til Vestmannaeyja af Helga Benediktssyni, kaupmanni og útvegsbónda, sem gerði það út þaðan til millilandaflutninga, sem voru þá mjög arðbærar vegna stríðsins.

Skaftfellingur hlaut nýja vél og lagfærðan byrðing árið 1943, og fékk hann þá einkennisstafina VE-33.

Heimstyrjöldin Síðari

Í september árið 1940 sögðu Bretar Þjóðverjum stríð á hendur, sem að hafði margvíslegar afleiðingar í för með sér fyrir Íslendinga — öll skip í fiskveiðiflota Breta voru tekin af fiskimiðunum og notuð til hergagnaflutninga, þannig að greið leið opnaðist fyrir Íslendinga að fiskimörkuðum, og fiskimiðum, Breta. Helgi VE-333, sem smíðaður var 1939, var tilbúinn til þess að flytja varning, og Helgi Benediktsson frétti af því að Skaftfellingur væri til sölu og ákvað að tefla á tæpasta vað - hann fjárfesti í skipinu og réð Ásgeir M. Ásgeirsson sem skipstjóra á því.

Fyrsta ferðin til Fleetwood, á vesturströnd Bretlands, var farin í janúar 1940, og fór hann alls vel yfir 20 ferðir með um 70 tonn af ísvörðum fiski á skipstjóratíð Ásgeirs. Tveir aðrir gegndu hlutverki skipstjóra Skaftfellings á stríðstímanum. Hallgrímur Júlíusson tók við af Ásgeiri, og svo tók Páll Þorbjörnsson við.

Vélarbilunin

Eingöngu einu sinni varð alvarleg vélarbilun, svo vitað sé, en hún átti sér stað skammt undan ströndum Skotlands. Skipið var á reiki í einhverja stund áður en að Breskur togari kom skipinu til bjargar og dró það til Fleetwood. Helgi dró Skaftfelling svo aftur til Íslands í sinni næstu ferð frá Fleetwood, en bæði skipin voru fullhlaðin varningi, þannig að ferðin tók um viku.

Kafbátsáhöfn bjargað

Aðfaranótt 19. ágúst árið 1942, rétt eftir miðnæti, hélt Skaftfellingur úr höfn í eina af sínum fjölmörgu ferðum til Fleetwood, að þessu sinni með farm af ísfiski. Páll Þorbjörnsson, skipstjóri, og Andrés Gestsson, háseti, áttu vakt aðfaranótt 20. ágúst. Mikil bræla var og austanátt þegar að, rétt fyrir fjögur um morguninn, gekk Bandarísk sjóflugvél yfir Skaftfelling í tvígang, gefandi þeim morse-merki. Andrés varð var við merkið og lét skipstjórann vita, en ekki tókst þeim að raða úr skilaboðunum. Þeir sáu aftur á móti mjög fljótlega að eitthvað var í sjónum framundan. Þeir töldu fyrst að um björgunarbát með segl væri að ræða, en svo sáu þeir að hvað sem þetta var virtist stinga sér í ölduna líkt og skip gera - eða kafbátar. Vissulega var það raunin að um kafbát var að ræða, sem stefndi til austurs. Skipverjar kafbátsins voru þá á þilfari kafbátsins, og veifuðu þeir til Skaftfellings með rauðum fána. Aðrir áhafnarmenn voru ræstir, fokkan (lítið segl) var dregin niður og Íslenskur fáni dreginn að húni. Fyrstur frívakts manna upp á dekk var fyrsti vélstjóri skipsins, þá Jóhann Bjarnason, en Páll skipaði honum að hlaða byssurnar. Skaftfellingur var búinn þremur vopnum: 5 skota riffill og 90 skota vélbyssa, auk skammbyssu sem skipstjórinn hafði.

Þegar að skipverjum Skaftfellings varð ljóst að skotið hafi verið á kafbátinn, honum gert ókleift að kafa og hann orðinn verulega laskaður, þá fóru þeir að huga að því að bjarga skipverjum, sem voru þá milli vonar og ótta, um borð í skipið. Reynt var fyrst að slaka til þeirra björgunarfleka sem að átti að geta borið 10-12 manns, en flekinn slitnaði frá Skaftfellingi. Á meðan að þeir kappkostuðu við að reyna að finna nýja leið til þess að draga Þjóðverjana um borð byrjuðu þeir að stinga sér út í sjó og synda að Skaftfellingi — aðstæður björgunarinnar breyttust þá á svipstundu, og menn kepptust við að hífa mönnum um borð. Reynt var í fyrstu að leita á og afvopna menn, en eftir því sem leið á björgunina varð það erfiðara.

Skipherra kafbátsins var síðastur um borð í Skaftfelling, en hann og tveir aðrir sökktu kafbátnum áður en að þeir fóru frá borði, svo að hann myndi ekki enda í óvinahöndum. 52 skipverjum var bjargað um borð í Skaftfelling, en sögum ber ekki saman um það hvort að það hafi verið 54 eða 60 um borð. Samkvæmt skipaskrá kafbátsins voru sextíu menn um borð, en samkvæmt vélstjóra Þýska bátsins, Reinhart Beier, voru eingöngu tveir sem lokuðust inni í skipinu þegar það sökk. Vandast málið þegar að athugað er að samkvæmt frásögn Andrésar Gestssonar var að minnsta kosti einn maður gestkomandi í kafbátnum:

[...] Ég man eftir því að annar þeirra var flugmaður sem kafbátsmenn höfðu bjargað. [...]

Samkvæmt skráningum þá voru þeir tveir sem létust Kurt Seifert og Karl Thiele.

Þjóðverjunum var skilað til tveggja Breskra tundurspilla sem að stöðvuðu Skaftfelling á för sinni. Þjóðverjarnir voru fluttir til Reykjavíkur og þeir geymdir þar í Kanadískum fangabúðum um hríð.

U-464

Kafbáturinn sem sökk þessa nótt, 20. ágúst 1942, var þýskur U-kafbátur (Underseeboot) af gerð XIV, nefndur U-464. Eingöngu tíu slíkir kafbátar voru smíðaðir, en þeir fengu viðurnefnið mjókurkýr (milchkuh). Þeirra hlutverk var að flytja hergögn og vistir til kafbáta af gerð VII og IX. Fyrsta mjólkurkúin var U-459, en U-464 var án efa sú skammlífasta. Bygging á bátnum hófst þann 18. mars 1941 og var sjósetningin þann 30. apríl 1942. Skipstjóri bátsins var kapteinleutenant Otto Harms.

U-464 fór tvær ferðir á sinni tíð, en fyrri ferðin, sem stóð frá 30. apríl 1942 til 1. ágúst 1942 var æfingaferð með 4. flottillunni, sem var æfingafloti fyrir kafbáta. Seinni ferðin hófst þann 1. ágúst 1942 og stóð til 20. ágúst, þegar að sjóflugvél af Catalínu gerð frá bandaríska VP-73 flughersveitinni varpaði fimm djúpsprengjum á hann. Djúpsprengjurnar löskuðu skipið að ofanverðu þannig að það gat ekki kafað, en þó hefði skipið átt að geta siglt áfram á um 8 sjómílna hraða (hann komst upphaflega á um 10 sjómílna hraða).

Skotið á Skaftfelling

Bretar, í hernámi sínu á Íslandi, gerðu þá kröfu að öll skip skyldu stöðvuð til skoðunar undan Hringskersgarði, áður en siglt yrði inn um hafnargarða. Bandaríkjamenn, sem tóku við hersetunni af Bretum árið 1941 hertu kröfurnar, og heimtuðu að öll skip skyldu staðnæmd í Víkinni. Skaftfellingur var á mikilli hraðferð inn í höfnina einu sinni, vegna veikinda stýrimannsins, Jón Bergs Jónssonar. Skipið hafði lónað um stund úti af víkinni, og ekki sást til Bandaríkjamannanna. Þar sem að þeir áttu ekki von á því að komast inn í höfnina ef fjaraði, sökum þess hve grunn höfnin var þá, sigldu þeir inn í höfnina.

Bandarískir hermenn hófu strax skothríð á Skaftfelling, sem snéri samstundis við og stöðvaði vélar sínar. Hermennirnir gáfu Skaftfellingi merki um að halda áfram til hafnar, en þeir áttu í miklum erfiðleikum með að komast úr stað. Þá kom í ljós, þegar að þolinmæði Bandaríkjamanna brást og þeir réðust um borð í skipið, að tundurdufl hafði rekið inn í höfnina, og lá þar sem Skaftfellingur hafði stoppað. Vissu menn af þessu tundurdufli, en töldu það vera utar í höfninni. Tundurduflið teppti höfnina í 3-4 daga, og það hefði líklega farið illa ef að Skaftfellingur hefði haldið út úr höfninni aftur.

Til hafnar í hinsta sinn

Að lokum rann síðasta vatn heimstyrjaldarinnar síðari til sjávar, og Skaftfellingur fór aftur í sinn gamla farveg — vöru- og farþegaflutningar milli hafna á Íslandi. Stundum fór Skaftfellingur á fiskveiðar þegar að lítið var að gera í flutningastarfseminni. Margar sögur eru af því hvernig Skaftfellingur stóð af sér hinar ótrúlegustu raunir: stórsjó, árásir óvina, árekstra, strand og fleira, en alltaf kom skipið heilt út úr því. Árið 1974 var skipið skoðað í síðasta sinn, en árið 1975 var Skaftfellingur dreginn upp í slippinn og stóð hann þar í um þrjátíu ár.

Eftir ósæmandi dvöl í gamla slippinum þar sem að málningin flagnaði, timbrið fúnaði og báturinn fékk á sig mosaskjöld, var hann loks tekinn í gegn að hausti ársins 2000: Yfirbyggingin var rifin af og skipið hreinsað alveg, og skipinu var lokað að ofanverðu til þess að hindra skemmdir á því. Árið 2001 var skipið svo flutt til Þorlákshafnar með gámaskipi, og þaðan til Víkur í Mýrdal þar sem að saga Skaftfellings byrjaði.

Skipstjóratal



Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
  • Saga Skaftfellings VE 33, ágrip, Arnþór Helgason og Sigtryggur Helgason.
  • uboat.net, U-464. [1]
  • uboatwaffe.net, áhafnarlisti U-464. [2]