Sjóslys

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 14:26 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 14:26 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sjósókn Vestmannaeyinga hefur verið mikil allt frá landnámi eyjanna og því hlaut það að leiða til þess að sjóslys urðu tíð í kringum eyjarnar. Fyrst í stað voru bátarnir smáir og hættulegt var að fara út á þeim í vondum veðrum. Þegar konungsútgerðinn kom varð mjög mikil smíði mikið af skipum í Vestmannaeyjum á 16. öld, aðalega mest teinæringar og tólfæringar. Árið 1862 varð svo framför í öryggi í útgerð Vestmannaeyinga en þá var Skipaábyrgarfélagið stofnað. Það var einskonar Tryggingarfélag fyrir skip þó fyrst aðeins fyrir opin róðrarskip.. En eftir að bátarnir urðu stærri, traustari, aflmeiri og þekking jókst, þá mun öryggi hafa aukist til muna. Hér fyrir neðan mun koma nokkrar frásagnir frá nokkrum sjóslysum við Vestmannaeyjar og mun það sýna þann kjark, huggarró, drengskap og fórnarlund formanna og sjómanna í Vestmannaeyjum.