Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1976/ Ledd

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. ágúst 2015 kl. 12:49 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. ágúst 2015 kl. 12:49 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) (Ný síða: <big><big>Ledd</big></big><br> Í landsuður af Heimaey er fiskimið, sem kallað er Ledd og stundum Katrínar-Ledd. Er það miðað þannig: Hábrandur við Suðurey og Hafnarbrekk...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ledd

Í landsuður af Heimaey er fiskimið, sem kallað er Ledd og stundum Katrínar-Ledd. Er það miðað þannig: Hábrandur við Suðurey og Hafnarbrekkan frammi. Hafnarbrekkan er í Bjarnarey og á að sjást í hana af miðinu. Mið þetta er afar fiskisælt, en slæmt kargahraun í botni, og var títt, að menn töpuðu þar vaðsteinum sínum eða sökkum.
Það er forn sögn, að miðið dragi nafn af því, að það bar einhverju sinni við, að menn, sem voru þarna á sjó, drógu marbendil. Slepptu þeir honum ekki fyrr en hann hafði sagt til nafns síns. Kvaðst hann heita Ledda, og nefndu þeir miðið eftir honum og hefur það haldist síðan.

(Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum).