Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1975/Loðnir Leppar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. ágúst 2015 kl. 10:53 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. ágúst 2015 kl. 10:53 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) (Ný síða: <big><big>LOÐNIR LEPPAR</big></big> Loðna er sagt að lifi í sjó,<br> loðna þorskinn seður,<br> loðna í hverri liggur þró,<br> loðna uppi veður.<br> Loðinn gerir lófa...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

LOÐNIR LEPPAR

Loðna er sagt að lifi í sjó,
loðna þorskinn seður,
loðna í hverri liggur þró,
loðna uppi veður.

Loðinn gerir lófa manns
loðnan fagurskæra;
hún byggir síðan húsið hans
og hamingjuna kæra.

Hún breytist líka í bílaflóð,
sem brunar eftir vegum,
en bensíninu brennir þjóð
í bílum skemmtilegum.

Ef loðin gerast loforð mín,
lævís, hál og ýtin,
sú loðna - - góði gættu þín,
- - er gráðug eins og híttin.

Sr. Þorsteinn L. Jónsson