Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1974/ Til vonarinnar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. maí 2019 kl. 13:33 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. maí 2019 kl. 13:33 eftir Valli (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Til vonarinnar


Lífsins vaki, vonin milda,
vekur gleði og efnd á borði,
annars væri einskis virði
að ætla sér að gefa og njóta.
Hún er guðagjöfin besta,
göfgar, fegrar, eykur þrekið,
ræður dauðans rún og sorgar,
reisir hallir sólskinsbjartar.

Þorsteinn Jónsson (Laufási).