Sigurgeir Kristjánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. janúar 2006 kl. 11:11 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. janúar 2006 kl. 11:11 eftir Inga (spjall | framlög) (flokkur fólk)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurgeir Kristjánsson, forstjóri. Varaþingmaður af lista Framsóknarflokksins í Suðurlandskjördæmi. Sat á Alþingi í febrúar-mars 1968. Fæddur í Haukadal í Biskupstungum 30. júlí 1916. Foreldrar Kristján (fæddur 12. júlí 1887) bóndi þar, síðar að Felli í Biskupstungum Loftsson bóndi í Kollabæ í Fljótshlíð, síðar í Gröf í Hrunamannahreppi Loftssonar og kona hans Guðbjörg (fædd 12. október 1893, dáin 6. september 1972). Kvæntur (2. desember 1947) Björg Ágústa (fædd 18. ágúst 1923) Ágústsdóttir bónda og útgerðarmanns í Stóru-Breiðuvík, Helgustaðahreppi, síðar verslunarmanns í Vestmannaeyjum og konu hans Elínar Halldórsdóttur. - Nám í Íþróttaskólanum í Haukadal 1933. Búfræðipróf frá Hvanneyri 1937. Búfræðinám í Svíþjóð 1946-1947. Bústjóri í Laugardælum 1942-1950. Löregluþjónn í Vestmannaeyjum 1951-1968. Forstjóri Olíufélagsins hf. í Vestmannaeyjum síðan 1968. Trúnaðarmaður verðlagsstjóra í Vestmannaeyjum 1958-1968. Forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja 1966-1978.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.