„Sigurbjörn Sveinsson (rithöfundur)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
mEkkert breytingarágrip
Lína 4: Lína 4:
Sigurbjörn var [[Barnaskólinn í Vestmannaeyjum|barnakennari]] í Vestmannaeyjum frá 1919 til 1932 en kenndi einnig ensku og hljóðfæraleik í einkatímum. Sigurbjörn er heiðursborgari Vestmannaeyjakaupstaðar.

Þá var Sigurbjörn félagsmaður í Taflfélagi Vestmannaeyja og var mikill skákunnandi og hafði sérlega gaman af skákdæmum, glímdi oft við að leysa skákþrautir og var sífellt að semja dæmi sjálfur.  
Þá var Sigurbjörn einn stofnanda [[Taflfélags Vestmannaeyja]] og mikill skákunnandi og hafði sérlega gaman af skákdæmum, glímdi oft við að leysa skákþrautir og var sífellt að semja dæmi sjálfur. Hann var á aðalfundi félagsins, 11. október 1936 kosinn fyrsti heiðursfélagi Taflfélagsins.  

Sigurbjörn skrifaði fjöldamargar barna- og unglingabækur, leikrit og ljóð. Þar má nefna ''Bernskan'', ''Geislar'', ''Margföldunartaflan'' og ''Æskudraumar'' en einnig barnaleikritið ''Glókollur'' sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu 1972. Var Sigurbjörn oft nefndur rithöfundur barnanna. Sigurbjörn þýddi mikið úr öðrum tungumálum og eru margir þýddir sálmar og ljóð til eftir hann.

Útgáfa síðunnar 23. apríl 2007 kl. 12:28

Sigurbjörn Sveinsson, rithöfundur barnanna.

Sigurbjörn Sveinsson fæddist 19. október 1878 í Austur-Húnavatnssýslu og lést 2. febrúar 1950. Sigurbjörn bjó í húsinu Hnjúk á Brekastíg.

Sigurbjörn var barnakennari í Vestmannaeyjum frá 1919 til 1932 en kenndi einnig ensku og hljóðfæraleik í einkatímum. Sigurbjörn er heiðursborgari Vestmannaeyjakaupstaðar.

Þá var Sigurbjörn einn stofnanda Taflfélags Vestmannaeyja og mikill skákunnandi og hafði sérlega gaman af skákdæmum, glímdi oft við að leysa skákþrautir og var sífellt að semja dæmi sjálfur. Hann var á aðalfundi félagsins, 11. október 1936 kosinn fyrsti heiðursfélagi Taflfélagsins.

Sigurbjörn skrifaði fjöldamargar barna- og unglingabækur, leikrit og ljóð. Þar má nefna Bernskan, Geislar, Margföldunartaflan og Æskudraumar en einnig barnaleikritið Glókollur sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu 1972. Var Sigurbjörn oft nefndur rithöfundur barnanna. Sigurbjörn þýddi mikið úr öðrum tungumálum og eru margir þýddir sálmar og ljóð til eftir hann.

Sigurbjörn var vel skáldmæltur og liggur meðal annars eftir hann ljóð sem telja má þjóðsöng eyjaskeggja og hefst þannig: Yndislega eyjan mín, en hvað þú ert morgunfögur.

Sigurbjörn lést árið 1950.

Heimildir

  • Íslenskt skáldatal. Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins, 1976.
  • Tímaritið Skák. V-Alþjóðamótið í Eyjum, júní 1985.