Sigurður Sigurfinnsson (hreppstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. júlí 2006 kl. 09:56 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. júlí 2006 kl. 09:56 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Sigurfinnsson var fæddur 6. nóvember 1851 í Ysta-bæli undir Eyjafjöllum, og lést 8. september 1916. Sigurður fluttist til Eyja árið 1872 og hóf sjómennsku. Hann varð fljótt formaður, bæði á opnum bátum og Hákarlaskútum. Hann var annar til þess að kaupa vélbát til Eyja, en það var Knörrin. Sigurður seldina Knörrina ári síðar og smíðaði sér sjálfur bát sem hann kallaði Skeið. Á þeim bát var hann formaður tvo vetur en eftir það hætti hann formennsku. Sigurður var að mestu leyti sjálmenntaður í siglingafræði og sigldi hann á siglum frá Noregi á Knörr. Hann var tíu sólarhringa á leiðinni og lág undir Hjaltlandi í einhvern tíma.

Siguður var hreppstjóri í tvo áratugi og framámaður í bæjarfélaginu frá upphafi. Sigurður var faðir Einars ríka og Högna Sigurðssonar.


Heimildir

  • Hilmir Högnason. Munnleg heimild.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.