Sigfús M. Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. júní 2005 kl. 16:01 eftir Simmi (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. júní 2005 kl. 16:01 eftir Simmi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigfús Maríus Jóhannsson Johnsen (28. mars 1886 - 9. janúar 1974) var frá Frydendal í Vestmannaeyjum og var lögfræðingur frá Kaupmannahafnarháskóla og útskrifaðist þaðan árið 1914.

Hann var í um þrjatíu ár fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í Reykjavík. Árið 1940 varð hann bæjarfógeti í Vestmannaeyjum.

Hann skrifaði nokkrar bækur, svo sem Saga Vestmannaeyja í tveim bindum (Reykjavík 1946), Herleiddu Stúlkuna (Reykjavík 1960), Uppi var Breki, Svipmyndir úr Eyjum (Reykjavík 1968) og Yfir fold og flæði (Reykjavík 1972).

Eiginkona Sigfúsar var Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen (3. júní 1890 - 9. október 1969). Hún starfaði mikið og farsællega að ýmsum félagsmálum í Vestmannaeyjakaupstað og gat sér góðan orðstýr fyrir þau störf.