Sandreyður

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. febrúar 2007 kl. 16:22 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. febrúar 2007 kl. 16:22 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Latneska heitið er: Balaenoptera borealis.

Sandreyður er skíðishvalur og er dökkgrár að lit með ljósan kvið, ljósa bletti á skrokknum og flekkóttan haus.

Sandreyðurinn er 12-20 m á lengd og 20-30 tonn að þyngd. Kýrin er stærri en tarfurinn.

Sandreyður lifir aðallega á átu og krabbasvifdýrum en tekur líka sandsíli. Sandreyðurinn er farhvalur og sést hér við land í ágúst og september.