„Sólveig Anspach“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
mEkkert breytingarágrip
Lína 7: Lína 7:


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Listamenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]

Útgáfa síðunnar 28. júní 2007 kl. 16:30

Sólveig Anspach er fædd í Vestmannaeyjum þann 8. desember 1960. Móðir hennar er Högna Sigurðardóttir arkitekt og faðir hennar er bandarískur, fæddur í Berlín og foreldrar hans rúmenskir og þýskir. Sólveig ólst upp í útlöndum og stundaði háskólanám í heimspeki og klínískri sálfræði í París. Sólveig hefur ekki búið á Íslandi en vinnur hér öðru hvoru. Hún hlaut íslenskan ríkisborgararétt í júní 2006.

Sólveig starfar sem leikstjóri. Hún hefur sérhæft sig í heimildamyndagerð, en hefur einnig gert leiknar myndir. Frægasta verk hennar er „Haut les cæurs“ („Há hjörtu“ á íslensku, útfærist „Haltu höfði“). Sú mynd fjallar um baráttu konu við brjóstakrabbamein. Sólveig kom til Vestmannaeyja árið 2003 til þess að gera kvikmyndina Stormy Weather („Stormviðri“ á íslensku). Fékk hún til liðs við sig fjölda Eyjamanna og hefur myndin verið góð landkynning fyrir Vestmannaeyjar.

Tenglar