„Sólbrúnir vangar“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 21: Lína 21:




::Lag: Oddgeir Kristjánsson
::Lag: [[Oddgeir Kristjánsson]]
::Texti: Ási í Bæ
::Texti: [[Ási í Bæ]]

Útgáfa síðunnar 18. júlí 2005 kl. 15:01

Sólbrúnir vangar siglandi ský
og sumar í augum þér,
angandi gróður, golan hlý
og sumar í augum mér.
Söngur í lofti, sólin hlær,
og svo eru brosin þín
yndislegri en allt sem grær
og angar og hjalar og skín.
Ástin og undrið,
æskunnar förunautar,
nemum og njótum
næði meðan gefst.
Látum svo daga líða á ný
með ljóð frá vörum mér,
sólbruna vanga, siglandi ský
og sumar í augum þér.


Lag: Oddgeir Kristjánsson
Texti: Ási í Bæ