Rottur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. júní 2005 kl. 09:37 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. júní 2005 kl. 09:37 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Svartrottur eru taldar hafa komið á land í Heimaey um miðja síðustu öld. Þær hafa m.a. flust hingað með skipum og farmi. Eitrað er fyrir rottum og þær veiddar í gildrur og hafa öll 3 afbrigði svartrottunnar veiðst, ( rattus, alexandrinus, frugivorus). mest af frugivorus. Einnig hafa veiðst afbrigði af þessum tegundum og benda litabrigði til að þau séu afkvæmi alexandrinus og frugivorus (grá á bak og ljósbrún á kvið annarsvegar og hinsvegar grá á kvið og brún á bak). Svartrottur halda sig í mannabyggðum og sækja gjarnan í skip og báta.