Rauðagerði

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2005 kl. 11:18 eftir Eyjavefur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2005 kl. 11:18 eftir Eyjavefur (spjall | framlög) (danielst)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Leikskólinn Rauðagerði hóf starfsemi sína 5. nóvember árið 1973 við Heiðarveg 41 en í maí 1974 flutti starfsemin í núverandi húsnæði við Boðaslóð 8–10.

Eins og í öðrum leikskólum er unnið samkvæmt aðalnámsskrá leikskóla frá árinu 1999 en áður hafði verið unnið eftir uppeldisáætlun fyrir dagvistarheimili frá árinu 1985 sem síðar var endurútgefin árið 1993.

Auk þess að vinna eftir aðalnámsskrá er kennt í grófum dráttum eftir hugmyndafræði Mariu Montessori. Hennar hugmyndafræði tekur mið af einstaklingsbundnu námi og sá hraði sem valinn er í kennslu fer eftir áhuga og þroska nemandans. Tónlistin skipar stóran sess í starfseminni og markviss tónlistarkennsla er hjá öllum börnum. Unnið er með „Markviss málörvun“ í skipulögðum kennslustundum leikskólans og er ritmálið gert sýnilegt auk „tákns með tali“.

Boðið er upp á sveigjanlegan dvalartíma frá sjö klukkustundum upp í tíu klukkustundir á þremur deildum. Opnunartími er frá kl. 7:30–17:30.

Aldursskipting nemendahópsins er frá 1 árs til 6 ára og samtímis eru 60 nemendur í skólanum

  • Bláa deild er með 13 nemendur á aldrinum 1–2 ára.
  • Gula deild er með 23 nemendur á aldrinum 2–4 ára.
  • Rauða deild er með 24 nemendur á aldrinum 4–6 ára.

Allar deildar eru kynblandaðar.


Tæknilegar upplýsingar

  • Heimilisfang:
Boðaslóð 8-10
900 Vestmannaeyjar
  • Sími:
4811097
  • Fax:
4812997
  • Veffang:
http://raudagerdi.vestmannaeyjar.is
  • Netfang:
raudag@vestmannaeyjar.is
  • Leikskólastjóri:
Helena Jónsdóttir
  • Aðstoðarleikskólastjóri:
Sigríður Ragnarsdóttir
  • Opnunartímar:
Mán - Fös 7.45 - 17.30
<meta:creator>Daníel St.</meta:creator>
<meta:source>vestmannaeyjar.is</meta:source>