„Páll Þorbjörnsson (skipstjóri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 2: Lína 2:




'''Páll Þorbjörnsson, Skipstjóri.''' Landskjörinn Þingmaður 1934-1937. Fæddur í Vatnsfirði 7. Október 1906. Dáinn í Vestmannaeyjum 20. febrúar 1975. Foreldrar Þorbjörn (fæddur 21. apríl 1875, dáinn 25 desember 1961) héraðslæknir á Bíldudal Þórðarson bóndi að Hálsi í Kjós Guðmundsson og kona hans Guðrún (fædd 25. Janúar 1883, dáin 3. júlí 1971) Pálsdóttir alþingismanns Ólafssonar. - K. (20. maí 1933) Bjarnheiður Jóna (fædd 7. september 1910) Guðmundsdóttir bónda á Ragnheiðarstöðum í Flóa Guðmundssonar og konu hans Ólafar Jónsdóttur. Lauk gagnfræðiprófi í Reykjavík 1922. Farmannaprófi 1930 frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Sjómaður 1920-1932. Varð þá kaupfélagsstjóri Kaupfélags alþýðu í Vestmannaeyjum í nokkur ár, síðan skipstjóri og útgerðarmaður þar. Stundaði kaupsýslustörf síðustu árin. Í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1935-1937. Yfirskoðunarmaður ríkisreikinga 1936-1937.
'''Páll Þorbjörnsson, Skipstjóri.''' Var landskjörinn þingmaður á árunum 1934 til 1937.  
 
Páll fæddist í Vatnsfirði þann 7. Október 1906. Páll lést í Vestmannaeyjum þann 20. febrúar 1975. Foreldrar Páls eru Þorbjörn Þórðarsson (fæddur 21. apríl 1875, dáinn 25 desember 1961) héraðslæknir á Bíldudal og Guðrún Pálsdóttir (fædd 25. Janúar 1883, dáin 3. júlí 1971). Páll kvæntist þann 20. maí 1933 Bjarnheiði Jónu (fædd 7. september 1910) dóttur Guðmundar Guðmundssonar bónda á Ragnheiðarstöðum í Flóa og Ólafar Jónsdóttur.  
 
Páll lauk gagnfræðiprófi í Reykjavík ári 1922. Páll tók farmannapróf árið 1930 frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Hann stundaði sjómennsku frá sextán ára aldri þar til hann varð 24 ára gamall eða á árunum 1920-1932. Þá varð hann ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags alþýðu í Vestmannaeyjum í nokkur ár en þá kallaði sjórinn aftur til hans og eftir það var hann skipstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum. Páll Stundaði kaupsýslustörf síðustu árin sem hann lifði. Hann var í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1935-1937. Yfirskoðunarmaður ríkisreikinga 1936-1937.


Páll var skipstjóri á [[Skaftfellingur VE-33|Skaftfellingi]] á árunum 1942—1945.
Páll var skipstjóri á [[Skaftfellingur VE-33|Skaftfellingi]] á árunum 1942—1945.

Útgáfa síðunnar 29. júní 2005 kl. 16:13

Páll Þorbjörnsson


Páll Þorbjörnsson, Skipstjóri. Var landskjörinn þingmaður á árunum 1934 til 1937.

Páll fæddist í Vatnsfirði þann 7. Október 1906. Páll lést í Vestmannaeyjum þann 20. febrúar 1975. Foreldrar Páls eru Þorbjörn Þórðarsson (fæddur 21. apríl 1875, dáinn 25 desember 1961) héraðslæknir á Bíldudal og Guðrún Pálsdóttir (fædd 25. Janúar 1883, dáin 3. júlí 1971). Páll kvæntist þann 20. maí 1933 Bjarnheiði Jónu (fædd 7. september 1910) dóttur Guðmundar Guðmundssonar bónda á Ragnheiðarstöðum í Flóa og Ólafar Jónsdóttur.

Páll lauk gagnfræðiprófi í Reykjavík ári 1922. Páll tók farmannapróf árið 1930 frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Hann stundaði sjómennsku frá sextán ára aldri þar til hann varð 24 ára gamall eða á árunum 1920-1932. Þá varð hann ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags alþýðu í Vestmannaeyjum í nokkur ár en þá kallaði sjórinn aftur til hans og eftir það var hann skipstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum. Páll Stundaði kaupsýslustörf síðustu árin sem hann lifði. Hann var í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1935-1937. Yfirskoðunarmaður ríkisreikinga 1936-1937.

Páll var skipstjóri á Skaftfellingi á árunum 1942—1945.

Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930