Nýborg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. desember 2007 kl. 13:48 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. desember 2007 kl. 13:48 eftir Frosti (spjall | framlög) (tók að húsið hafi farið undir hraun og setti inn mynd)
Fara í flakk Fara í leit
F.h. Nýborg og Mandalur

Húsið Nýborg við Njarðarstíg 17 er eitt elsta hús í Eyjum. Það var byggt árið 1876 af Sigurði Sveinssyni sem var jafnan kenndur við hús sitt. Nýborg er eina húsið sem er eftir af Njarðarstíg en öll önnur hús við götuna fóru undir hraun eða voru rifin.

Þegar byrjaði að gjósa bjuggu hjónin Ásbjörn Guðjónsson og Guðrún Friðrikdóttir ásamt dóttur sinni Elísabetu Ólöfu í húsinu. Einnig bjó Björn Bergmundsson þar.



Heimildir

  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.