Meira fjör

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 14:10 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 14:10 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Meira fjör, meira fjör,
meira yndi.
Meira fjör, meira fjör,
Jói á Hól.
Út á tjörn, út á tjörn
Einar syndi.
Stattu vakt, stattu vakt,
Stebbi pól.
Hæ, syngjum sveinar
sætasta Geira­ lag.
Hæ, saman svöllum
syngjandi glaðan dag.
Meira fjör, meira fjör,
meira yndi.
Meira fjör, meira fjör,
Jói á Hól.
Lag: Oddgeir Kristjánsson
Texti: Árni úr Eyjum