„Marinó Guðmundsson (kaupmaður)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 4: Lína 4:


Eftir að hann kom af sjónum hóf hann rekstur húsgagnaverslunar með syni sínum. Hann var rómaður fyrir heiðarleik og hjálpsemi, bæði við störf til sjós og í landi.
Eftir að hann kom af sjónum hóf hann rekstur húsgagnaverslunar með syni sínum. Hann var rómaður fyrir heiðarleik og hjálpsemi, bæði við störf til sjós og í landi.


{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Sigurgeir Ólafsson. ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja''. 1963.}}
* [[Sigurgeir Ólafsson]]. ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja''. 1963.}}


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Formenn]]

Útgáfa síðunnar 26. júlí 2006 kl. 09:22

Marinó Guðmundsson fæddist að Skógum undir Eyjafjöllum þann 21. júní 1912 og lést 21. desember 1962. Foreldrar hans voru Guðmundur Kjartansson og Margrét Bárðardóttir að Skógum undir Eyjafjöllum. Hann ólst upp í Gíslakoti undir Eyjafjöllum hjá fósturforeldrum vegna slæmrar heilsu móður sinnar. Marinó kvæntist Önnu Jónsdóttur þann 2. október 1937. Þau eignuðust einn son, Trausta. Anna lést tæpu 21 ári eftir dauða húsbónda síns.

Fljótlega eftir fermingu fór Marinó til Eyja á vertíðir. Var hann snemma eftirsóttur skipverji. Eftir að hafa verið háseti í nokkur ár gerðist hann formaður. Hann lauk prófi í Stýrimannaskólanum árið 1947 og strax að því loknu réðist hann sem háseti á togara Bæjarútgerðar Vestmannaeyja.

Eftir að hann kom af sjónum hóf hann rekstur húsgagnaverslunar með syni sínum. Hann var rómaður fyrir heiðarleik og hjálpsemi, bæði við störf til sjós og í landi.


Heimildir