Magnús Jónsson (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 09:13 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 09:13 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Magnús Jónsson


Magnús Jónsson var sýslumaður Vestmannaeyja frá 1896 til ársins 1908. Hann var fæddur þann 27. desember 1865 og lést þann 27. desember 1947. Foreldrar hans voru Jón Halldórsson, hreppstjóri í Nauteyrarhreppi og kona hans Guðrún Þórðardóttir.

Magnús varð stúdent í Reykjavík árið 1887 og lauk lögfræðiprófi frá Háskólanum í Kaupmannahöfn árið 1894. Hann var settur sýslumaður í Vestmannaeyjum í maí 1869 og skipaður sýslumaður þar sama ár.

Magnús var þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Kristín Sylvía Lárusdóttir. Önnur kona hans Jóhanna Andrea Oddgeirsdóttir og þriðja kona hans var Guðrún Sigríður en þær tvær eru systur. Átti Magnús samtals níu börn með konum sínum.

Magnús var einn af fimm mönnum sem komu Ísfélaginu á laggirnar.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.