Magnús Helgason (Engidal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2006 kl. 13:10 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2006 kl. 13:10 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Helgason fæddist í Grindavík 8. september 1896 og lést 10. október 1976.

Árið 1920 fór hann til Vestmannaeyja og settist þar að í Engidal. Fyrst var Magnús endurskoðandi hjá Eyþóri Þórarinssyni. Síðar var hann skrifstofumaður hjá Jóni Einarssyni á Gjábakka.

Árið 1927 tók hann hið minna fiskimannapróf hjá Sigfúsi Scheving og í kjölfarið tók hann við formennsku á bátnum Hebron.

Magnús var gjaldkeri í Reykjavík síðustu starfsár sín. Hann lést í Reykjavík, 80 ára gamall.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 5 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.