Mýs

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 08:56 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 08:56 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsamýs eru til staðar á Heimaey. Þær lifa í mannahíbýlum sem og utan þeirra, t.d. í holum í Klifi og Stórhöfða, og lifa á korni og öðrum jurtum. Sú húsamúsategund sem lifir í Eyjum hefur ekki fundist á meginlandinu og hefur sú spurning vaknað hvort tegundin kunni að vera sú upprunalega frá landnámi.