„Lestrarfélag Vestmannaeyja“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(bætti inn reglugerð)
mEkkert breytingarágrip
Lína 25: Lína 25:
7. Félagi þessu, sem nú stofnast, sé hið fyrsta ár veitt forstaða af sýslumanni og sóknarpresti Vestmannaeyja, og velji þeir sér til aðstoðar þann mann, er þeir álíta bezt til þess fallinn; - en að þessu ári liðnu og framvegis, skulu 3 menn kosnir í forstöðunefnd af félagsmönnum, á aðalfundi félagsins, er jafnan skal haldinn einu sinni á ári, um fardaga leyti.
7. Félagi þessu, sem nú stofnast, sé hið fyrsta ár veitt forstaða af sýslumanni og sóknarpresti Vestmannaeyja, og velji þeir sér til aðstoðar þann mann, er þeir álíta bezt til þess fallinn; - en að þessu ári liðnu og framvegis, skulu 3 menn kosnir í forstöðunefnd af félagsmönnum, á aðalfundi félagsins, er jafnan skal haldinn einu sinni á ári, um fardaga leyti.


8. Meðlimir forstöðunefndarinnar skulu eptir samkomulagi sín á milli, hafa öll þau störf á hendi er viðkoma félaginu, svo sem bókhald, bókageymslu og reikninga yfir tekjur og gjöld félagsins, skal nefndin hafa 3 bækur, eina gjörðabók, aðra
8. Meðlimir forstöðunefndarinnar skulu eptir samkomulagi sín á milli, hafa öll þau störf á hendi er viðkoma félaginu, svo sem bókhald, bókageymslu og reikninga yfir tekjur og gjöld félagsins, skal nefndin hafa 3 bækur, eina gjörðabók, aðra fyrir reikninga félagsins og hina 3ju innihaldandi bókalista
fyrir reikninga félagsins og hina 3ju innihaldandi bókalista
og útlán bóka.
og útlán bóka.



Útgáfa síðunnar 12. júní 2006 kl. 14:50

Bjarni E Magnússon var ekki búinn að vera lengi búsettur í Vestmannaeyjum þegar hann hófst handa við að hafa áhrif á samfélagið. Hann hófst handa við að stofna samtök til þess að efla framfarir og menningu í byggðarlaginu.

Árið 1862 stofnaði hann Skipaábyrgðarfélagið og það sama ár Lestrarfélag Vestmannaeyja. Þá hafði hann fengið til liðs við sig séra Brynjólf á Ofanleiti og Bryde kaupmann. Þeir félagar skrifuðu ávarp að því tilefni og er það eftirfarandi;

,,Hverjum manni má kunnugt vera, hver mjög almenn menntan og þekking styður að því að efla heill og velferð lýða og landa, og má með sanni álítast sem grundvöllurinn undir andlegum og líkamlegum framförum hvers einstaks manns og þjóðfélags yfir höfuð; því upplýsingin og þekkingin hvetur menn til dáðar og dugnaðar, en til þess að neyta krafta sinna, sér og öðrum til gagns og nota, því með almennri upplýsingu fylgir allajafna almenn velferð, dáð og dugur, en með vanþekkingu ódugnaður og eymdarskapur. Af þessum ástæðum hefur oss undirskrifuðum, er fúslega viljum stuðla til þess, er miðar Vestmannaeyjum til heilla og velferðar, komið ásamt um, að til þess að efla og glæða almenna og nytsama þekkingu meðal Eyjabúa, sem vér eins og nú er getið, álítum svo áríðandi, væri mjög nauðsynlegt að bókasafn yrði stofnsett hér í Vestmannaeyjum, innihaldandi ýmsar fróðlegar og lærdómsríkar bækur á íslensku og dönsku máli, er frætt gæti alþýðu, og vorðist oss þetta hér því æskilegra, sem enga skólamenntun er að fá hér handa börnum og unglingum, sem menn á öðrum stöðum, einkum í útlöndum, geta orðið aðnjótandi, eins og það á hinn bóginn er alkunnugt að mörgum, bæði ungum og gömlum, bæði hér og annars staðar á Íslandi, þykir mikil unum að bókum, en geta opt eigi sökum fátæktar eða annarra orsaka vegna, fengið þær. Undir eins og vér þvíerum fullvissir um, að margir hér muni hafa vilja til þess að afla sér þess fróðleiks, er glætt geti sanna framafara löngun í andlegu og líkamlegu tilliti, ef þess gæfist kostur, viðurkennandi sannleika hins forna málsháttar ,,að blindur er bóklaus maður”, verðum vér jafnframt að játa, að flesta skortir efni til, að afla sér nytsamra og fróðlegra bóka, og viljum því- þar félagsskapur og samtök góðra manna geta ráðið bót á þessu- skora á þá af Eyjabúum sem einhver efni hafa og vilja vel sér og þessum afskekkta Hólma að ganga í lið með oss, og styrkja oss með tillögum sínum, og stofna bókasafn, sem tilheyra á Vestmannaeyjum og heita á Bókasafn Vestmannaeyja Lestrarfélags og miða til upplýsingar og uppfræðingar fyrir alþýðu hér á eyju."


REGLUGJÖRÐ fyrir Lestrarfélag Vestmannaeyja.

1. Það er mark og mið lestrarfélags Vestmannaeyja með stofnun bókasafns, er innihaldi ýmsar fróðlegar og nytsamar bækur, einkum á íslenzku og dönsku máli, að efla almenna þekkingu á öllu því, er stutt geti að andlegum og líkamlegum framförum, og þar með fylgjandi heill og hagsæld Eyjabúa sérílagi.

2. Hver sem verða vill meðlimur félags þessa, borgi, um leið og hann gengur í það, og svo lengi sem hann er í því, ár hvert, að minnsta kosti tvö mörk hvort heldur er í peningum eða með einhverri þeirri bók, er forstöðunefnd félagsins álítur félaginu gagnlega, og skal hann hafa goldið tillag sitt inna maí-mánaðarloka hvert ár.

3. Sá félagsmaður sem lætur eitthvað af hendi rakna við félagið, fram yfir það, sem minnst er tiltekið, skal hafa þeim mun meiri rétt til bókalána hjá félaginu.

4. Hver sá er auðsýna kynni félaginu einhverja sérlega velgjörð, getur á aðalfundi félagsins, ef fleiri atkvæði eru með en móti, orðið kjörinn sem heiðursfélagi.

5. Hvern þann félaga, sem ekki greiðir hið minnsta tiltekna tillag í 2 ár samfleytt, má eptir uppástungu forstöðunefndar-innar útiloka úr félaginu, nema því aðeins að hann þá borgi skuld sína, og æski framvegis að vera í félaginu.

6. Sá, sem vill segja sig úr félaginu, gjöri það ekki seinna en misseri á undan aðalfundi.

7. Félagi þessu, sem nú stofnast, sé hið fyrsta ár veitt forstaða af sýslumanni og sóknarpresti Vestmannaeyja, og velji þeir sér til aðstoðar þann mann, er þeir álíta bezt til þess fallinn; - en að þessu ári liðnu og framvegis, skulu 3 menn kosnir í forstöðunefnd af félagsmönnum, á aðalfundi félagsins, er jafnan skal haldinn einu sinni á ári, um fardaga leyti.

8. Meðlimir forstöðunefndarinnar skulu eptir samkomulagi sín á milli, hafa öll þau störf á hendi er viðkoma félaginu, svo sem bókhald, bókageymslu og reikninga yfir tekjur og gjöld félagsins, skal nefndin hafa 3 bækur, eina gjörðabók, aðra fyrir reikninga félagsins og hina 3ju innihaldandi bókalista og útlán bóka.

9. Á aðalfundi félagsins, sem getið er í niðurlagi 7. greinar, skal forstöðunefndin skýra frá aðgjörðum félagsins um hvert undanfarið ár, einnig framleggja reikning yfir fjárhag þess.

10. Forstöðunefndin lánar út bækur til meðlima félagsins einu sinni í viku hverri (og mun hún, þegar þar að kemur, gefa félagsmönnum nánari ávísun um meðferð bóka og annað þar að lútandi).

11. Þyki þess þörf að gjörð sé breyting á reglum þessum eða við þær bætt, skal þar um rætt á almennum fundi.

Reglugjörð þessi er samantekin af stofnendum félagsins.

Vestmannaeyjum í Júnímánuði 1862.

B. E. MAGNÚSSON BR. JÓNSSON J. P. T. BRYDE


Heimildir

  • Blik, ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Maí 1962. Eftir Þorstein Þ. Víglundsson