Leikfangasafn Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2006 kl. 15:34 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2006 kl. 15:34 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Leikfangasafn Vestmannaeyja er útláns-og ráðgjafaþjónusta ætluð börnum sem þurfa á aðstoð að halda til aukins þroska. Safnið starfar þannig að veitt er þroska-og leikþjálfun, tekin eru þroskamöt á börnum og veitt ráðgjöf til foreldra og annarra sem annast börnin, allt eftir því sem við á í hverju tilfelli.

Forstöðumaður Leikfangasafns Vestmannaeyja er Guðbjörg Guðmundsdóttir, þroskaþjálfi. Árið 2006 er safnið staðsett í Þórsheimilinu.