Kristinn Magnússon (Sólvangi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2006 kl. 08:24 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2006 kl. 08:24 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Bætti við texta)
Fara í flakk Fara í leit

Kristinn Magnússon, Sólvangi, fæddist á Seyðisfirði 5. maí 1908. Árið 1915 fluttist Kristinn til Vestmannaeyja ásamt foreldrum sínum, Magnúsi Jónssyni og Hildi Ólafsdóttur. Kristinn byrjaði sjómennsku árið 1924 en formennsku hóf hann árið 1932 á Pipp. Eftir það er Kristinn meðal annars með Hilding og Gylfa II. Kristinn var formaður í rúmlega 30 ár. Eftir að hann kom í land sá hann um rekstur Verkamannaskýlisins á Básaskersbryggju. Kristinn var kvæntur Helgu Jóhannesdóttur hjúkrunarkonu og eru börn þeirra: Theódóra (látin), Ólafur Magnús hafnarstjóri í Vestmannaeyjum, Jóhannes (látinn), Guðrún og Helgi (látinn).


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.