Komum fagnandi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2006 kl. 09:11 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2006 kl. 09:11 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Komum fagnandi (ÍBV-lagið)

Eyjapeyjar hafa það að aðalmarkmiði,
að sparka hvork’í mótherjann né rífa kjaft við dómarann
Látum heldur ánægjuna vera ríkjandi,
Þett’er jú bara fótbolti.
Þótt streymi á móti og stig séu fá
Þá stöndum við saman að því,
Að þegar við sameinumst Hásteinsvell’ á
Komum fagnandi.
ÍBV, ÍBV, fögnum saman sumarlangt
Þett’er okkar mál, tökum þátt af lífi og sál
Og syngjum áfram ÍBV
Knattspyrnumenn Eyjamanna njóta góðs af því
Að nóg er af ráðleggingum frá spyrnufróðum spekingum
Fremstur er í flokki þar og hvers manns hugljúfi
Hinn dæmigerði Hólsari
Jafnt heima sem heiman menn styðja sitt lið
Og stálslegnir mæta á völl
Með kraftmiklum köllum að Eyjanna sið
Koma fagnandi
ÍBV, ÍBV, fögnum saman sumarlangt
Þett’er okkar mál, tökum þátt af lífi og sál
Og syngjum áfram ÍBV
ÍBV, ÍBV, fögnum saman sumarlangt
Þett’er okkar mál, tökum þátt af lífi og sál
Og syngjum áfram ÍBV
Þett’er okkar mál, tökum þátt af lífi og sál
Og syngjum áfram ÍBV

Höfundur texta: Leifur Geir Hafsteinsson, Ívar Bjarklind Höfundur lags: Leifur Geir Hafsteinsson