Karl Ólafsson (Heiðarbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. febrúar 2013 kl. 09:32 eftir Gauti (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. febrúar 2013 kl. 09:32 eftir Gauti (spjall | framlög) (Taflfélagið)
Fara í flakk Fara í leit
Karl

Karl Ólafsson fæddist 30. janúar 1915 og lést 13. júlí 1990. Foreldrar hans voru Ólafur Ingileifsson og Sigurjóna Sigurðardóttir. Samfeðra Karli voru Sigurgeir, Eggert, Einars á Kap og Guðna á Gjafari.

Karl bjó á Hásteinsvegi 7 en í Reykjavík seinni árin.

Karl var formaður með mótorbátinn Mýrdæling. Hann var lengi félagi í Taflfélagi Vestmannaeyja og Skákmeistari Vestmannaeyja 1960.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Karl:

Kannar gniðar kaldan völl
Kalli borinn Óla,
þó að svæsin sævar föll
siglum vilji róla.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Karl hræðist víði varla,
ver Ólafs þann ég geri.
Gísla Johnsen á sýslar,
særinn, þó slíti færi.
Happsamur knarrar kappi
kann sig á leiðum hranna.
Tafl kann sá Týrinn afla,
talfár er greindur halur.

Myndir



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.