Jarþrúður P. Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 14:44 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 14:44 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jarþrúður P. Johnsen fæddist 3. júní 1890 í Fnjóskadal, dóttir séra Péturs Jónssonar og Helgu Skúladóttur á Hálsi í Fnjóskadal. Jarþrúður var kona Sigfúsar Maríusar Johnsen.

Jarþrúður gekk í Kvennaskólann í Reykjavík og stundaði síðan tungumálanám. Á yngri árum þótti hún hafa fagra söngrödd og lærði hún meðal annars hjá frægum söngkennara í Kaupmannahöfn. Eitt sinn héldu þær saman tónleika í Vestmannaeyjum, Jarþrúður og Anna Pálsdóttir píanóleikari, kona Sigurðar Sigurðssonar lyfsala í Eyjum.

Jarþrúður var einnig hagmælt og gáfuð. Heimili þeirra hjóna bar vott um snyrtimennsku og reglusemi.

Sigfús og Jarþrúður eignuðust ekki börn saman en áður átti Sigfús einn son.


Heimildir

  • Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Vestmannaeyja. 1969.