Jón Guðmundsson (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2005 kl. 09:27 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2005 kl. 09:27 eftir Skapti (spjall | framlög) (Jón Guðmundsson færð á Jón Guðmundsson (sýslumaður))
Fara í flakk Fara í leit

Jón Guðmundsson var sýslumaður Vestmannaeyja 1798 til 1801. Foreldrar hans voru séra Guðmundur Jónsson að Krossi í Landeyjum og Guðrún Halldórsdóttir frá Stað í Steingrímsfirði. Jón stundaði nám í Skálholtsskóla í þrjá vetur, fór svo utan og tók stúdentspróf frá Hróarskelduskóla. Jón lauk prófi í lögum frá háskólanum í Kaupmannahöfn árið 1798. Hann fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjasýslu sama ár og sat hana til ársins 1801. Hann fékk veitingu fyrir Vestur-Skaftafellssýslu árið 1801. Kona hans var Ragnhildur Guðmundsdóttir frá Fljótsdal. Þau bjuggu í Stakkagerði. Börn þeirra voru fjögur.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.