Jón Þorleifsson (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. nóvember 2005 kl. 13:00 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. nóvember 2005 kl. 13:00 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þorleifsson var sýslumaður í Vestmannaeyjum á árunum 1801 til 1812. Foreldrar hans voru Þorleifur Nikólásson að Ási í Holtum og kona hans Guðrún Jónsdóttir að Stóra-Núpi, Magnússonar.

Jón stundaði nám í Skálholtsskóla í tvo vetur og síðar í Reykjavíkurskóla eldri og lauk þaðan stúdentsprófi. Hann fór utan 1793 og var skráður í stúdentatölu við háskólann í Kaupmannahöfn og lagði þar meðal annars stund á lögfræði en lauk ekki prófi. Fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjasýslu 1801 og lausn frá embætti á eftirlaunum 1812. Drukknaði við Eyjar nokkru síðar. Fyrri kona hans var Þórunn Ólafsdóttir, ekkja Jóns sýslumanns Eiríkssonar og bjuggu þau í Stakkagerði. Síðari kona: Bóel Jensdóttir í Ámundakoti í Fljótshlíð, Sigurðssonar og bjuggu þau á Oddsstöðum. Börn þeirra, sem upp komust voru Arnfríður sem átti Guðmund Sigurðsson á Oddsstöðum og Þórður, sem dó ókvæntur og barnlaus.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.