„Jón Þorleifsson (sýslumaður)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 9: Lína 9:
}}
}}


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Sýslumenn]]
[[Flokkur:Sýslumenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 18. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 19. öld]]
[[Flokkur:Íbúar á Stakkagerði]]
[[Flokkur:Íbúar á Oddsstöðum]]

Útgáfa síðunnar 22. júní 2007 kl. 11:43

Jón Þorleifsson var sýslumaður í Vestmannaeyjum á árunum 1801 til 1812. Foreldrar hans voru Þorleifur Nikólásson að Ási í Holtum og kona hans Guðrún Jónsdóttir að Stóra-Núpi, Magnússonar. Fyrri kona Jóns var Þórunn Ólafsdóttir, ekkja Jóns sýslumanns Eiríkssonar og bjuggu þau í Stakkagerði. Síðari kona Jóns var Bóel Jensdóttir í Ámundakoti í Fljótshlíð, Sigurðssonar og bjuggu þau á Oddsstöðum. Börn þeirra, sem upp komust voru Arnfríður sem átti Guðmund Sigurðsson á Oddsstöðum og Þórður, sem dó ókvæntur og barnlaus.

Jón stundaði nám í Skálholtsskóla í tvo vetur og síðar í Reykjavíkurskóla eldri og lauk þaðan stúdentsprófi. Hann fór utan 1793 og var skráður í stúdentatölu við Háskólann í Kaupmannahöfn og lagði þar meðal annars stund á lögfræði en lauk ekki prófi. Hann fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjasýslu 1801 og lausn frá embætti á eftirlaunum 1812.

Jón drukknaði við Eyjar nokkru síðar.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.