„Hvítingar“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Jsþ 1085a.jpg|thumb|300px|Mynd tekin frá Hvítingum, horft til norðurs yfir þáverandi [[Sjúkrahús Vestmannaeyja]].]]
'''Hvítingar''' voru tveir stórir, sérkennilegir steinar sunnan við túngarða [[Stakkagerði]]s. Þeir hölluðu þannig að þeir voru hæstir í norðri, um tveir metrar á hæð, en hölluðu niðurávið til suðurs. Steinarnir voru gráleitir með mjög áberandi hvítum blettum sem nafn þeirra er dregið af.

Útgáfa síðunnar 5. ágúst 2005 kl. 14:08

Mynd tekin frá Hvítingum, horft til norðurs yfir þáverandi Sjúkrahús Vestmannaeyja.

Hvítingar voru tveir stórir, sérkennilegir steinar sunnan við túngarða Stakkagerðis. Þeir hölluðu þannig að þeir voru hæstir í norðri, um tveir metrar á hæð, en hölluðu niðurávið til suðurs. Steinarnir voru gráleitir með mjög áberandi hvítum blettum sem nafn þeirra er dregið af.

Á 16. öld var Vestmannaeyska þingið flutt að Hvítingum frá Vilborgarstöðum, en í upphafi 19. aldar var húsið Hvítingar byggt þar. Minnst er á húsið í manntalinu 1859 og stóð það skammt suður af Stakkagerðistúni.

Hvítingatraðir var gata sem lá meðfram suðurhlið Stakkagerðistúns eftir Hvítingum (steinunum) og Hvítingum (húsinu), en sú gata heitir Hvítingavegur í dag.