Hlynur Stefánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 09:01 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 09:01 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hlynur Stefánsson er fæddur 8. október 1964. Móðir hans er Friðrikka Svavarsdóttir og fósturfaðir Hrafn Oddsson. Systkini hans eru Björgúlfur og Lind. Hlynur er kvæntur Unni Sigmarsdóttur og eiga þau þrjú börn, Birki, Kristrúnu Ósk og Rakel. Þau búa að Hrauntúni.

Hlynur spilaði knattspyrnu með ÍBV í fjöldamörg ár og gerðist seinna atvinnumaður með Örebro í Svíþjóð. Hefur Hlynur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum. Hann var meðal annars valinn prúðasti leikmaður efstu deildar árið 1996 og besti leikmaður efstu deildar árið 2000. Hann lék auk þess leiki með landsliði Íslands í knattspyrnu.

Hlynur er stofnfélagi Round Table 11 í Vestmannaeyjum. Hlynur starfar sem umboðsmaður Vífilfells í Vestmannaeyjum.